Þakklæti, oft vanmetin tilfinning.....

Góðir hlutir og slæmir, geta leitt til þakklætis,-það finnst Trukkalessunni hún hafa skilið lengi, en enn betur á liðnum dögum.

 Gjörningur Norskra bænda, með styrkveitingum til Íslenskra bænda, hrærði Trukkalessuna nánast til tára.....Þessi styrkur er gefinn af slíkri óeigingirni og auðsýndur skilningur á því ástandi sem íslenskir Suðurlandsbændur búa við, að það er dásamlegt.

Alltof oft hefur Trukkalessan séð útlendinga blóta íslendingum, fyrir gosið,- tafir á flugi o.s.frv.  Þetta fólk gleymdi alveg þeim sem urðu verst fyrir barðinu á gosinu, og allt þeirra lísstarf lagt að veði eða jafnvel í rúst.

Ég fyllist þakklæti að vera flutt til lands, sem er ekki undir hervaldi, hungursneyð, menntunarskorti,- og öllu öðru því ástandi sem ég hef nánast daglega horft uppá, undanfarin sex ár.

Ótúlegt er hið daglega þakklæti, sem ég finn til,- að geta nú hreyft mig, án takmarkana. Það eru litlar sem engar hættur, sem ógna mér á endalausum gönguferðum í Noregi Smile

En sorgarfréttir gærdagsins minntu mig líka á þakklæti. Æskuvinur unnusta míns, og hans fjölskylda,- búa hér stutt frá okkur, í húsi sem þau byggðu og fluttu inní, fyrir 4-5 árum. Húsið þeirra brann til kaldra kola í fyrrinótt. Húsbóndinn var einn heima, og forðaði sér út á ögurstundu. Þegar hann opnaði út, varð sprenging í húsinu, og ekkert stendur eftir. Hjónin og börnin þeirra tvö, standa eftir í heilu lagi, sem er vissulega þakklætisvert. En þau hafa tapað öllum sínum persónulegu eigum, sem engar Tryggingar ná að gefa tilbaka. Fjölskyldumyndir, bækur, gjafir o.s.frv....Og þau hafa tapað heimilinu sem þau lögðu mikla alúð í að byggja upp.....

Svo hvað mig varðar, Þakklæti skal verða innlegg þessarar viku, í það minnsta......Vona að þið minnið ykkur á, hvað þið hafið að þakka fyrir!!!

Góðar stundir

Steinunn


Íslandsheimsókn, margt skrýtið í kýrhausnum.....

Trukkalessan er nýkomin úr heimsókn til Íslands.

 

Megintilgangur ferðarinnar var að samfagna 100 ara afmæli móðurafa mins, Stefáns Bjarnasonar; en einnig að kynna  norskan unnusta minn fyrir vinum og fjőlskyldu, og sýna honum hluta af landinu okkar fagra. Við hittum líka Sýslumannin a Selfossi, sem mun gera okkur þann heiður, að gefa okkur saman í sumar.

Svo, strembin dagskra fyrir aðeins vikutúr…..

Og Trukkalessan pínulítið stressuð, að Ísland og Íslendingar litu nú vel út í  augum hennar heittelskaða……

 

Íslandsfőr finnst mér alltaf hafin, þegar komið er um borð í flugvél með íslenskri áhőfn.

 

Starfsfólk Icelandair, um borð og síðar á Íslandi, var allt til fyrirmyndar og get ég skammlaust sagt, að ég hafi verið stolt og þakklát fyrir þeirra frammistőðu alla. Samt er það til minnkunnar fyrir félagið, að selja skyndibitana um borð. Samlokurnar eru ferskar og góðar, en ættu að vera innifaldar í miðaverði, eins og allavega glas af léttvíni eða bjór,- þar eð Icelandair telur sig ekki til Flugfélaga á borð við Iceland Express eða Ryan Air……

En flugið var frábært, og var gaman að sjá mőkkinn frá Eyjafjallajőkli, stíga uppúr skýjahjúpnum, sem lá yfir landinu við komu.

Ég fann að útlendingarnir um borð, voru svolítið ringlaðir….. Í stað þess að þessi mőkkur stőðvaði ferð þeirra, var flogið í ljósmyndafæri við hann J Glæsilegir,- íslenskir flugstjórar!!

 

Á Fróni vorum við sótt af góðum vinum, og ekið fljótlega í sumarbústað að Þóroddsstőðum rétt utan við Sandgerði.  Við getum hiklaust mælt með þessum bústőðum, allir með heitum potti, og fjarlægð frá flugvelli nánast engin, samt heyrir maður ekkert í flugumferð!!

Og svo er þægilega stutt til allra átta þaðan.

 

Eitt sló mig, strax við komuna, og átti eftir að vekja athygli mína alla dagana sem við dvőldum á landinu,- það voru hinar fjőldamőrgu bifreiðar með endurskoðunarmiða á númera plőtunum.  Þetta er hrikalega skýrt merki um ástandið í þjóðfelaginu, fólk hefur ekki efni á að halda bílum sínum í őruggu ásigkomulagi. Enn meira sjokkerandi var að sjá, að svo margar bifreiðarnar voru með lőngu útrunna endurskoðun. Þetta er sorglegt, og eigendur eiga hluttekningu mína alla, en jafnframt er óásættanlegt fyrir alla vegfarendur, að bifreiðar sem eru ekki með alla őryggisþætti í lagi, séu án athugasemda akandi um þjóðvegina.

 

Dagarnir liðu svo í fjőlskyldu og vinaheimsóknum, og eiga allir minir ástvinir gríðarlegar þakkir skyldar, fyrir afbragðs gestrisni og úrvals mat!!! Við, sem veiðum fisk nánast daglega, hőfum aldrei borðað fisk svo marga daga í rőð, en hann var alltaf FRÁÁÁBÆR!!!  Joyful

 

Heimsókn í Bláa Lónið, hefði slegið í gegn, ef ekki fyrir þá staðreynd að fégræðgi þeirra Bláa Lónsmanna verður verri með hverju árinu. Minn heittelskaði var mjőg pirraður yfir þeirri huglægu markaðs-nauðgun, að geta ekki notað Inngang sem Útgang, heldur vera NEYDDUR í gegnum verslun Bláa Lónsins, til ad komast útundir bert loft aftur……

 

Bæjarins Bestu og SS voru mjőg hátt skrifaðar, þó ég botni ekkert í því….Aldrei verid ýkja hrifin af hundamat sjálf….. Hehehehehehe

 

 

Fundurinn með Sýslumanninninum á Selfossi var einstakur, og var minn norski unnusti alveg rasandi hissa að Sýslumaðurinn gaf sér tíma til ad hitta okkur á sunnudagsmorgni. Kann ég honum bestu þakkir fyrir, bæði fyrir hlýlegt og afslappað viðmót, og að gefa sér einnig tíma til að hjálpa okkur með ferðaáætlun sunnudagsins,- Geysi-Gullfoss og Þingvelli…….

 

Ferðin sú var næstum őll hin ánægjulegasta,  og veðrið eins og best verður á kosið. Við fengum tvő flott gos úr Strokki, Gullfoss skartaði regnboga, og Þingvellir voru sem Paradís á jőrð.

En þá gerdist það…… Frown

Við vorum buin að ganga frá Peningagjá, framhjá Þingvallakirkju,- upp að Hakinu (þar sem stendur til ad gifta okkur í sumar) og stefndum a Lőgbergið, gegnum Almannagjá.

Við hőfðum tekið eftir íslenska fánanum við hún, á leið okkar. En nú var hann horfinn af fánastőnginni. Á leið okkar eftir gjánni, mættum vid konu nokkurri, merktum starfsmanni Þjoðgarðsins a Þingvőllum, med íslenska fánann í KUÐLI undir handleggnum!!!

Ég spurði hana hví fáninn væri ekki lengur vid hún, og hún svaraði stuttaralega að hann væri alltaf tekin niður klukkan fimm. Eg leit á klukkuna, og hún var nákvæmlega 16:40.

Þá spurði ég hana hvort hún bryti virkilega þjóðfánann svona saman? Ég var svo slegin, að ég jesúsadi mig…..Sem gerist nú ekki oft…..Hún svaraði enn styttra ”nei”…Og steðjaði í burtu með hraði.

Trukkalessan er nú ekki heimsins mesta hefðarkona, langur vegur frá,- en að sjá Þjóðfána Íslendinga vőðlaðann saman á þennan hátt, í Þjóðgardi landsins,- var bara aðeins of mikið fyrir minn smekk!!!  Hvílíkt virðingarleysi og tillitsleysi, og að láta erlenda gesti verða vitni að þessu……ÚfffffffShocking

 

Hinsvegar var trukkalessan afar stolt af viðbragðsflýti Lőgreglunnar í Keflavík,- í þessari heimsókn. Eitt kvőldið ókum við Reykjanesbraut suður, við vorum snemma á ferð; á leið í kvőldverð í Ytri-Njarðvík.  Trukkalessan var með dýrmætan farangur, syni mína tvo og títtnefndan unnusta.  Rétt ofan við Innri Njarðvik varð Trukkalessan vőr við Jeppa, í baksýnisspegli, sem ók eftir okkur og reykti mikinn. Trukkalessan hægði nú ferð, til að geta gert őkumanni jeppans aðvart, ef hann hefði ekki tekið eftir reyknum. Hann æðir þá upp með hliðinni á bifreið okkar, en þegar hann er að ná okkur, virðist őkumaðurinn missa stjórn á bílnum (Gallopper Jeppa) og hendist útaf veginum.  Hann heldur ferðinni, og hendist á ofsahraða eftir ójőfnu yfirborði millikaflans sem skilur akreinarnar að, um stund. Trukkalessan dró samstundis úr ferð, til ad forðast skæðadrífu af grjóti sem hinn bíllinn kastaði inn á brautina. En þegar ljóst varð að hann rétt komst hjá veltu, og hélt sőmu ferð uppá veginn aftur,- ákvað Trukkalessan ad kanna hvaða ástand væri á mannskapnum í þessari bifreið. Ókum við uppað hlið hennar, rétt til ad sjá flősku rétta milli ungmenna í bifreiðinni. Þá lagði Trukkalessan út í kant og hringdi í 112. Það geta ekki hafa verið meira en 2-3 mínutur frá símtalinu þar sem þetta aksturslag var tilkynnt, þar til við keyrðum fram á fyrrnefndan bíl, sem hafði þá þegar verið stőðvaður af lőgreglu.

Háttarlag þessara ungmenna var stórhættulegt, og mikil mildi ad engin slys urðu á fólki.

Alveg ótruleg svona hegðun, og það fáeinum dőgum eftir hið hőrmulega slys ungmenna á svipuðum slóðum….Hvað þarf til að þessir krakkar vakni upp??!!!

Norski gesturinn í bifreið Trukkalessunnar var alveg gríðarlega undrandi á viðbragdsflýti lőgreglunnar, og gerði það mig enn og aftur stolta af okkar mőnnum.

Þess ber að geta, að umrædd bifreið var á endurskoðun merktri ´5´ ef mér skjátlast ekki, hefði bifreiðin átt að vera komin af götunum fyrir maí……

 

Allt samanlagt, var Íslandsheimsóknin hin ánægjulegasta főr, og erum við spennt að koma næst, og njóta sumardaga, með enn fleiri erlendum vinum, og ekki síður okkar innfæddu…..

 

Góðar stundir!!!  Grin

 

 

 

 

 

 

 

 


Jarðvísindamenn undrandi...??

Fréttir af eldgosi í Eyjafjalljökli, var það fyrsta sem mætti augum trukkalessunnar,- þegar kveikt var á tölvunni í morgunsárið.  Get alls ekki sagt að það hafi komið mér á óvart. Það sem hinsvegar kemur mér á óvart, er sú saðreynd að flestar fréttir sem ég hef lesið varðandi hræringar undir jöklinum undanfarið, hafa haft niðurlagið "Jarðvísindamenn telja ekki ástæðu til að búast við eldgosi"......??

 Að vísu kannaðist Ármann Höskuldsson við það, í marsbyrjun, að skjálftavirknin gæti leitt til eldgoss. Lítið hef ég lesið frá öðrum jarðvísindamönnum, nema að þeir hafi verið uppteknir við að bera af sér hugmyndir fréttamanna og annarra, um hugsanlegt eldgos.

Kannski telja þessir snillingar að þeir séu að vernda íslenskan almenning, gegn ofsahræðslu......Geri mér ekki alveg grein fyrir hvað veldur,- en hitt er víst að hvaða útskýringar sem þarna liggja fyrir, eru með öllu óásættanlegar.  Það er dagjóst að jarðvísindamenn geta með góðu móti spáð fyrir um eldgos, með nokkuð góðum fyrirvara. Þeir sem skammast sín fyrir vikubiðina, þegar síðasta stógos varð í Vatnajökli, ættu að hugsa sig um aftur.  Betra er að gefa fóki staðreyndir, og leyfa því að halda vöku sinni, heldur en að það sé granadalaust og í óbilandi trausti sínu á jarðvísindamenn, sé nokkuð öruggt um að ekkert sé á seyði.

Ég hef einnig lesið að RÚV hafi algjörlega klikkað, sem öryggistæki. Þaðan hafi borist mjög takmarkaðar og illa unnar fréttir. Og þar með sé þð ljóst að menn þar á bæ, séu ekki alveg með sitt hlutvek á hreinu.

Allir ofantaldir eru á launaskrá Ríkisins, ef mér skjöplast ekki. Þar af leiðandi er það mikilvægt að þessir starfsmenn fólksins í landinu, geri sér grein fyrir upplýsingakyldu sinni til almennings, sem er í rauninni atvinnuveitandi þeirra.

Annas vona ég að þetta verði fallegt gos, skaði engan, en dragi til landsins fullt af ferðamönnum!!

Góðar stundir

Steinunn


mbl.is Flugvöllum lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttir,- meðalmennskan allsráðandi?

Trukkalessunni verður æ oftar ofboðið, þegar hún les íslenska fjölmiðla á Veraldarvefnum,- undanfarið ár.

Metnaðarleysi virðist vera orðið allráðandi,- menn hlaupa til og skrá óstaðfestar fréttir, slælegar þýðingar erlendra frétta og engin heimavinna. Þetta er rauði þráðurinn í íslenskri fjölmðlun, er skoðun Trukkalessunnar.

Mbl.is hefur algjörlega misst flugið,- þar á bæ virðast menn hafa skorið svo duglega niður, að það gengur kraftaverki næst ef uppfærslur eru einhverjar yfir heilu helgarnar!! Kannski er það ekki niðurskurður, heldur almennt áhugaleysi?

Visir.is er lítill eftirbátur Mbl.is þegar kemur að óstaðfestum staðhæfingum og metnaðarlausri fréttamennsku. En visir.is hefur nú í augum Trukkalessunnar alltaf verið meira svona slúðursíða, og styttra milli þeirra og Baggalúts, en þeir myndu eflaust vilja kannast við.

Sem tekur okkur að hlut Baggalúts,- sá vefmiðill, verandi ádeilu-húmor í meira lagi,- er oft skilvirkari í fréttaskotum sínum, en hinir "alvarlegri" fjölmiðlar........Er það ekki kaldhæðni??

Landshlutavefirnir verða líka að njóta sannmælis. Það er til fyrirmyndar að þessir fjölmiðlar halda velli, og fréttaflutningur þeirra er málefnanlegur og á heildina litið, virðast menn ekki dirfast (eða hafa áhuga á að) að fara með fleipur, og senda landsmönnum.

Trukkalessan tekur ofan fyrir Landshluta-fjölmiðlunum,- og óskar þess eindregið að þeir haldi áfram sínu metnaðarfulla starfi hafi áreiðanleikann að leiðarljósi.

Með bestu kveðjum og von um góða helgi til allra landsmanna!!

Steinunn Helga Snæland


Bara snilld!!

Ragnar, þú ert snillingur og ég er viss um að þú mubt gefa vasapeningana margfalt tilbaka!!!

'Afram heiðarlegir frama-menn!!!!

Kv

Steinunn


mbl.is Hafði vasapeninga af súðvískum börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhverfisverndarsinnar??

Lýsir þessi frétt ekki vel, síendurteknum tvískinnungi umhverfisverndarsinna?  Það er jafnlíklegt að þessir "snillingar" hafi komið á staðinn, á sínum eldgömlu, pústspítandi bílhveljum.....

Svokallaðir umhverfissinnar hafa sannað það, hérlendis og erlendis,- að upp til hópa er þetta fólk, sem hefur ekkert betra við tíma sinn að gera, og lifir dagsdaglega þvert á þau gildi, sem það er svo áfram í að predika, mótmæla og jafnvel stunda eyðileggingu,- til að styðja "málstaðinn"...

Ótrúlegustu umræður líta nú dagsins ljós,- í sambandi við ráðstefnuna í Kaupmannahöfn. Skondnast fannst mér að sjá ASÍ ætla að fara að tvinna þessi mál við þeirra baráttu.....Svona álíka þarft framlag, og þegar maður talar um veðrið við Femínista, og þær/þeir fullyrða að það sé sök vondra karlmanna, hvernig veðrinu er komið......

ASÍ á náttúrulega bara að halda sig við að bæta lífskjör landsmanna,- sér í lagi hinna lægstlaunuðu,- spyrna við óréttlátum skattaálögum, og hafna niðurfellingum réttinda, sem tók áður virka Verkalýðshreyfingu,- áratugi, að fá upp á borðið.

Að ætla að fara að gera þessi mál að ASÍ máli, er nokkuð líkt því að dreifa skít,- og halda að enginn sjái hann lengur.....

Svokallaðir umhverfisverndarsinnar eru fundnir útum allt. Þeir t.a.m. prenta áróðursbréf í milljónatali á ári hverju,- og hvolfa þeim um götur stórborga. Fyrst semsé leggja þeir vel að mörkum til eyðingar regnskóganna, og vinna svo umhverfisspjöll, með því að henda ósómanum útum allt..... Tvískinnungur og ekkert annað,- öfgar eins og þær gerast verstar...

Eigið góðan dag elskurnar!!

 


mbl.is Unnu spjöll á sendiráði Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilega Hátíð,- Breytingar í aðsigi hjá Trukkalessunni ;)

Elskulegu Bloggvinir!! 

Trukkalessan situr í Kongó, og tíminn líður ekki nógu hratt núna!

Í janúarbyrjun verður haldið til Noregs að hitta unnustann, systur mína og tilvonandi tengdafjölskyldu...Mikil spenna á bænum hér. 

Á komandi ári er stefnt á gríðarlegar breytingar. Ég hef ákveðið að halda á nýjar slóðir, hætta störfum hjá UN og verða heimilisföst með tilvonandi eiginmanni í suður Noregi. 

Það er einkennilega aðlaðandi hugsun, að fara að lifa eðlilegu lífi á ný,- í friðsælu og þróuðu landi.  Tilhlökkunin vex með degi hverjum, eins og hjá litlu barni....Bíð þess að vera með mínum heittelskaða, og þurfa ekki að snúa tilbaka frá honum, innan fáeinna daga, eins og fram að þessu...

Allt þetta mun taka sinn tíma, en ég stefni á að vera farin héðan ekki seinna en í endaðann Júní 2010.

Og hvað hefur reynslan kennt mér á þessum árum,- og hvað tek ég með mér á nýjar slóðir?

Ég tel mig hafa lært að vera þakklát fyrir að vera Íslendingur,  frá landi þar sem ekki hefur ríkt styrjöld í manna minnum. Að vera fædd í landi, þar sem allir hafa jafnan rétt til menntunar og heilbrigðisþjónustu. Ísland, þar sem við drekkum hreint vatn úr krananum, og það kemst á forsíður blaðanna, ef rafmagn dettur út í fáeinar mínútur,- í hluta bæjarfélags!! Þar sem hungur er óþekkt... Mitt yndislega land, mengnarlaust,- með einstaka náttúrufegurð, bjartar sumarnætur og Norðurljós...

Íslendingar; hreinskilnir, samstíga, með ríka réttlætiskennd, góðan húmor og ólatir.....Stunda ekki mannskæð ættbálkastríð....

Landið mitt, þar sem glæpir gegn mannkyni eru nánast óþekktir, og glæpatíðni frá degi til dags er langt undir meðaltali annarra landa.

Ísland; land málfrelsis, ritfrelsis og jafnréttis (Þó að sú einhliða barátta hafi farið nokkuð úr böndunum)...

En ég flyt ekki aftur til þessa fyrirheitna lands, að sinni a.m.k.  Afhverju, myndu margir spyrja?  Ástin hefur leitt mig annað, og í sárri hreinskilni, hafa þær hörmungar sem óstjórn hefur leitt yfir landsmenn, ekki gert það freistandi möguleika að snúa tilbaka.

Þrátt fyrir allar þær hræðilegu afleiðingar sem gjörðir þessa fólks hafa haft,- vona ég að samlandar mínir gefi sér tíma núna yfir hátiðirnar, og muni að þakka fyrir hvað þeir eru heppnir í raun,- ef allt sem fyrir ofan er talið, er tekið með í reikninginn.

Ég hlakka sjálf til að flytja til Noregs,- lands og landsmanna sem er okkur að svo mörgu skylt. Bjartsýn horfi ég til þess að fara aftur að stunda eðlilega vinnu, og eiga heimili....

Ég vil óska ykkur öllum og ástvinum ykkar; Gleðilegra jóla og Farsældar á komandi ári,- og þakka þeim sem hafa sýnt mér umhyggju og alúð í "útlegðinni".  Muni ég klára í júní, verða árin í Afríku orðin fimm og hálft, það er ágætt veganesti úr þessari heimsálfu,- en sá styrkur sem þið hafið sýnt mér, hefur verið ómetanlegur!!

Kær kveðja

Steinunn Helga Snæland

 


Sorglegt og óviðunandi

Hvernig má það vera að í nútímasamfélagi, séu börn enn að stríða við framkomu að þessu tagi?

Það er greinilega pottur brotinn, ekki aðeins hjá þeim börnum sem eru kvalarar/gerendur, hér,- heldur öllum sem að þeim standa.  Það er ekki spurning, ef foreldrar barnanna sem þessi drengur átti samskipti við, hefðu gefið sér örlitla stund, til að rækta með þeim skilning og samkennd,- hefði dæmið snúið öðruvísi.  Hver voru viðbrögð fólksins sem starfar með drenginn? Hvað gerðu leikskólakennarar og síðar kennarar, til að styðja þennan einstakling félagslega?

Er ekki kominn tími til, að fólk átti sig á, að námsgeta barna er aðeins toppurinn á ísjakanum, hvað varðar sáluheill þeirra og hamingju?  Félagslegi þátturinn mun hafa miklu meiri áhrif, til langs tíma.  Einstaklingur, sem er stöðugt undir aðkasti og árásum,- er ekki líklegur til að eiga sér mikla möguleika í lífinu, hvort sem er í námi eða leik,- eineltið mun heltaka allt líf hans og taka alla hans athygli.

Hvenær ætlar samfélagið að krefjast þess að fólk sé dregið til ábyrgðar, þegar börn búa við slíka kvöl?

Ábyrgðin á að vera hjá foreldrum gerenda og öllu því starfsfólki, sem mun í skólakerfinu, hafa samskipti við þolendur/gerendur. 

Bretar hafa nú dregið foreldra til ábyrgðar fyrir skrópi barna sinna. Hvernig væri að Íslendingar drægju foreldra til ábyrgðar fyrir sadískri hegðun sinna barna?  Samúð, skilningur, kærleikur og opinn hugur gagnvart öðru fólki,- er lærð hegðun. Ef foreldrar mega ekki vera að því að kenna börnum sínum þessa grunnþætti manngæsku og framkomu,- þá er eitthvað mikið að. Geti skólastarfsmenn ekki gefið sér tíma til að standa vörð um þá sem verða fyrir aðkasti, einelti eða annarri andfélagslegri hegðun, sem beinist gegn einstaklingum, sem þeim er treyst fyrir,- þá eru þeir ljóslega á rangri hillu í lífinu.  Það traust sem þessu fólki er sýnt,- á hverjum degi sem foreldrar setja börn sín í þeirra hendur,- er mölbrotið, þegar barnið líður félagslega þjáningu á skólatíma.

Gleymum ekki að afskiptaleysi/félagsleg einagrun, er líka einelti. Maðurinn er félagsvera, og það kemur sterkt fram í þessu viðtali, hve mikið kvalræði það er, að vera afskiptur. Það stingur líka í hjartað, að heyra greinilega hvað það, að "hafa verið öðruvísi", fylgir fólki frameftir öllum aldri.  Það ætti enginn að þurfa að burðast með svo tregafullar æskuminningar.

Það er alveg ótrúlegt að foreldrafélög og skólayfirvöld séu svo upptekin af því að safna peningum í hitt og þetta, eða berja bókvitið inn í börnin okkar,- að þau hafi engan tíma eða áhuga á að koma að þessu eldgamla og hræðilega vandamáli.  Hjálpa börnum til að mynda með að gera þau að stuðningsaðilum við nýnema, skapa meiri hópvinnu í frístundum,- og gefa ekki eftir að allir eigi jafnan rétt á að taka þátt, o.s.frv.

Nei, því miður þá er mun meiri athygli á íþróttastjörnurnar og aðra sterkari karaktera,- sem eru í raun að spjara sig ágætlega, og þurfa ekki svo mikla athygli eða stuðning.

Mér er alltaf ofarlega í minni, þegar skólastjóri sagði tveimur mæðrum,- sem áttu drengi, sem höfðu liðið stöðugt einelti,- "að skólinn bæri ekki ábyrgð á að skaffa drengjunum vini"....Þetta var yfirlýsing, sem fylgdi þvi að loksins höfðu aðrir foreldrar og skólastarfsmenn sett gerendunum mörk, og þessir tveir drengir voru ekki undir líkamlegum og andlegum árásum, á hverjum degi,- eins og fram að því.  Hinsvegar voru þeir i staðinn, settir   "á frost",- fengu ekki að taka þatt í neinu, og hefðu eins getað verið vofur á göngum skólans, og jafnvel í tímum. Þeir áttu ekkert félagslíf utan skóla heldur.  En skólinn "bar ekki ábyrgð á að skaffa þeim vini"!!! Fullorðið fólk, með sérmenntun í að ábyrgjast þessa einstaklinga, hafði ekki meiri einurð eða áhuga á vellíðan skjólstæðinga sinna, en þetta!!

Þetta ástand er búið að líðast í alltof langan tíma,- og óþarft að benda á, að það versnar með hverri kynslóð,- af einhverjum orsökum, er eins og grimmdin færist stöðugt í aukana, samviskuleysið vex. 

Ég tek ofan fyrir hverjum þeim, sem eins og foreldrarnir í þessu viðtali, spyrna við fótum og segja að það sé nóg komið. Ég vona að börnin sem þau eru að styðja, muni njóta góðs af. Mér er samt spurn, hvort ekki sé sterkari leikur að öll hagsmunasamtök barna, séu undir einum hatti,- og nái þá frekar fram einhverjum viðhorfsbreytingum. Það skiptir engu máli, af hverju börnin okkar eiga undir högg að sækja,- hvort þau tala öðruvísi, eru stór, lítil, hölt, klæða sig öðruvísi eða skera sig úr "hópnum" með öðrum hætti,- þau eiga öll sama rétt á mannúðlegri framkomu samfélagsins!!!

Horfum í eina átt, börnin eru framtíðin og eiga rétt á að geta horft tilbaka síðar, og mun góða tíma......

Góðar stundir

Steinunn


mbl.is Hann var alltaf einn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áráttuhegðun íslenskra "vísindamanna"....

Enn og aftur er forgangsröðun íslenskra lækna gjörsamlega út úr kú.

Ég ætla alls ekki að neita því, að reykingar séu skaðlegar,- en því miður er alltof oft farið frjálslega með staðreyndir, þegar læknar og yfirvöld, vilja draga athyglina að reykingum. (Oft hentar slík umræða stjórnvölum vel, til að draga athygli landsmann frá einhverjum mikilsverðari hlutum/umræðu) 

Skaðsemi reykinga er mikil, ekki spurning um það. hún er hinsvegar alltof oft ýkt, og orsakir og afleiðingar teknar úr samhengi.

Mér er ferskt í minni, að fyrir nokkrum árum,- var hinn íslenski Landlæknir ekki sáttur við umræðu um skaðsemi áfengisdrykkju. Hann sat fund með mörgum sem höfðu þjáðst af afleiðingum alkóhólisma,- alkóhólistum, aðstandendum, hjúkrunarfræðingum, prestum, löggæslumönnum ofl. Þegar umræddur læknir hafði lítilsvirt þennan fund, nokkrum sinnum,- tók steininn úr, þegar hann fullyrti að árið áður "hefði ENGINN Íslendingur látist af völdum áfengisdrykkju"!!??  Margir viðstaddir höfðu í frammi hávær mótmæli, og kom m.a. fram hjá fagfólki, að það væri erfitt að greina þetta, þar eð slíkt kæmi aldrei fram á dánarskýrslum,- heldur hefði drukkni maðurinn sem fleygði sér fram af kletti, "látist af falli", áfengisdauða konan sem kafnaði i eigin uppköstum,- hafði "látist af völdum drukknunar, eða köfnunar"... og svo mátti lengi telja....

Sama gildir um dánarvottorð reykingarmanna, það er klárt. Reykingarmaður má ekki hrasa í stiga,- ef hann reykir, er það klárlega ástæða fallsins!! Allt sem tengist heilsufari reykingarmannsins, SKAL hengt á reykingar hans/hennar!!

Ég hef orðið fyrir þessu sjálf, að vera með verk í baki/öxlum, og læknagrey taldi við hæfi að fara að ræða reykingar mínar, í því samhengi!!!

En drykkjusjúkdómar eru BANNUMRÆÐUR!!  Talandi um peninga sem eytt er í reykingartengd samfélagsleg/heilbrigðis-vandamál...

Það er ekki spurning að meiri peningum er eytt í félagslega aðstoð til handa alkóhólistum, aðstandendum þeirra og tap á vinnumarkaði vegan allskyns fjarveru,- heldur en reykingarmanna.

Félagslegar afleiðingar drykkjusjúkdóma eru án vafa alvarlegra mál, en þær sem að reykingum snúa.

Hvað eru mörg dæmi um að fólk til að mynda leggi hendur á ástvini sína, eða aðra,- af því að þeir reykja?

Hvað hafa margar nauðganir verið tengdar reykingum?

Hvað eru margir fangar inni á stofnunum, vegna afbrota frömdum af einhverjum, sem hafði reykt of mikið?

Hvað hafa margar fjölskyldur verið leystar upp, vegna reykinga?

Hvað hafa margir misst vinnu, eða hætt að mæta,- vegna reykinga?

Hvað er algengt að reykingarmenn, mæti ekki í vinnu "daginn eftir" að fá sér sitt tóbak?

Hvað má rekja mörg bílslys til reykinga, versus drykkju?

Er þetta ekki lítisvirðing við alla þá sem þjást, jafnvel svo árum áratugum skiptir,- sökum áfengissjúkdóma?

Setjið nú forgangsröðina rétta, í EITT SKIPTI!!! Ef yfirvöldum er svona hugleikið að taka einstaklingsréttinn og "valið" af fullorðnu fólki,- hafið þá alavega hugrekki til að byrja á réttum enda!!

Hvað varðar unglinga reykingar, er ekki komin tími til að fólki sé gert að ala upp sín börn, án íhlutunar yfirvalda? Hvað hafa sömu yfirvöld gert til að íhlutast, vegna ofurölvunar unglinga um allt land? Þá finnst þeim við hæfi að foreldrar taki ákvarðanir og axli ábyrgð...

Læknar og aðrir, sem telja sig geta ráðskast með fullorðið fólk, ættu ekki að vera þeir hugleysingjar,- að þora ekki að skora áfengisdrykkju á hólm,- vegna þess að hún er "samþykkt félagsleg athöfn",- eins og góður læknir játaði fyrir mér, þegar við ræddum þessi mál, fyrir mörgum árum. 

Reykingarfólki hefur nú þegar verið hent út úr húsi, allsstaðar þar sem fólk kemur saman. Furðu má sæta, að réttur eigenda staða,- er enginn.  Starfsfólk samkomustaða ætti að hafa sama val, sumir vilja og sumir vilja ekki, vinna á stöðum þar sem reykt er.  Hvað varð um hið fræga einstaklingsfrelsi á Íslandi?  Ætlum við að taka framúr Svíum, Kínverjum og "gömlu" Sovétríkjunum,- og svipta fólk algjörlega sínum valréttindum?

Væri ekki nær að vera að líta til annarra og mikilsverðari málefna, sem snerta framtíð landsmanna?  Þetta er farið að lykta eins og Bjórumræðan, gerði hér í gamla daga.  Alltaf þegar íslensk stjórnvöld þurftu að ýta óþægilegum málum gegnum þingið, var bjórumræðan dregin upp, rykið dustað af henni,- og meðan þyrstur landslýðurinn horfði gráðugum augum á, og vonaði að nú myndi verða af afléttingu bjórbannsins,- var öðrum óþægilegum málum mokað gegnum þing landsamanna,- bakdyramegin.....

Ég velti fyrir mér....Hvað hangir á spýtunni núna???

Góðar stundir

Steinunn


mbl.is Hugmynd um að banna tóbakssölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EINELTI NEI TAKK! Hetja hjólar fyrir aðrar Hetjur!!

Mikið vona ég að allir leggist á eitt, og leggi þessu þarfa málefni lið!!

Nánast allir hafa þekkt einelti, frá einhverri hlið,- verið þolendur, verið vinir eða fjölskylda þolenda,- eða jafnvel verið gerendur.  Gleymið því ekki elskulegu samferðarmenn, að sá sem stendur hjá, og aðhefst ekkert, er gerandi líka.

Einelti er framkvæmt daglega, í skólum, á vinnustöðum og víðar. Einelti er ekki eingöngu framið gegn börnum, heldur fullorðnu fólki líka. Og þegar hópur setur sig í þvílíka stellingar gagnvart fullorðinni manneskju,- ýmist notar hvert tækifæri til að niðurlægja,- eða horfir í hina áttina,- þá er þessari manneskju gert lífið óbærilegt!!

Hvað þá, þegar um minstu samborgara okkar er að ræða,- blessuð börnin. Grimmdin sem einkennir einelti, er langtum meiri,- en við eigum nokkurn tímann von á að okkar börn auðsýni öðrum börnum. En ef við veigrum okkur við umræðuna, heima, á foreldrafundum og allsstaðar þar sem hægt er að koma ákveðnum skilaboðum til barnanna,- skilaboðum sem segja "ALLIR foreldrar og kennarar eru samtaka um að einelti verður ALDREI liðið, í þessum skóla/félagsskap/hóp",- mun ekkert breytast.

Ég þekki einelti af eigin raun. Ég bý enn að því að hluta,- þó ég hafi verið svo ljónheppin að geta unnið mig útúr mesta sársaukanum. Að hafa verið 'Feiti nördinn með gleraugun'.....Situr enn í mér.  Ég veit í dag, að ég var ekkert verri en hinir, en ég sakna þess að eiga ekki fölskvalausar minningar úr skóla, eins og margir mínir vinir.

Ég hef sett biturðina til hliðar, ég hef fyrirgefið grimmdina og aðgerðarleysið í hjarta mínu,- en ég er tilbún að ganga langt, til að standa í vegi fyrir að önnur börn og unglingar, þurfi að ganga gegnum sömu líðan sem fylgir manni langt fram á fullorðinsár.

Ég hef alltof oft séð sömu hluti endurtaka sig síðan,- séð sinnuleysi skólayfirvalda, séð og heyrt foreldra sem neita að gangast við að gerendurnir séu þeirra börn,- að þau verði að stöðva, og þau þurfi aðstoð til að hætta að kvelja önnur börn....Sorglegt!!

Eg barnið þitt er oftast eitt á ferð, fær ekki boð í afmæli, tekur ekki þátt í félagslífi, sínir enga tilhlökkun fyrir umhverfi sínu,- athugaðu þá hvort allt sé í lagi,- og MUNDU að benda barninu þínu á, að það muni fá ótakmarkaðan stuðning þinn!!  Hikaðu svo ekki við, að ganga alla leið, gagnvart hverjum þeim sem draga skal til ábyrgðar.  Fáðu félagsskapinn Jerico; sem Jakob Einar hjólar fyrir, til liðs við þig!! 

Ekki gleyma að gerandinn og fjölskylda hans mun líka þurfa aðstoð og styrk til að breyta sínu munstri, og opna augun fyrir réttu og röngu.

Ég ætla að leggja fé til þessarar söfnunar, og vona að þú gerir það sama!

Með baráttukveðjum til þeirra sem standa saman gegn einelti!!

Góðar stundir

Steinunn Helga Snæland


mbl.is Á hjóli með kokk og fellihýsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband