Íslenskir stafir, já TAKK :)

Jæja þá, minn elskulegi sonur hefur forðað frekari niðurlægingu af minni hálfu,- með að senda mömmu sinni upplýsingar um hvernig átti að setja íslenska stafi inn í kerfið hér.  Nú er bara að æfa sig :)  Ég er í skóla þessa vikuna, eins og mig langaði nú að blogga um margt og mikið, en það verður að bíða betri tíma.  ég er nýkomin úr "sveitinni" eins og áður sagði, og hef varla sest í mína "vinnustöð" í þrjár vikur.  En næsta vika ætti að vera einfaldari, og það verður hvergi slegið af.  Ljúflega féll rigningin hér í Kinshasa í morgun, aldei nóg af henni, og öllu svalara en í gærkvöldi, þegar ég kom heim til að finna íbúðina rafmagnslausa og þar af leiðandi án loftræstingar allan gærdaginn,ö var eins og í finnsku sauna baði í gærkvöld......... Elskurnar, "sé" ykkur eftir föstudag..... Góða viku, það sem eftir er........

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband