Kinshasa Congo "Home sweet Home"....

Bara örstutt innlegg, við systur höfum nú lokið ævintýraferðinni til Kenya, þar sem ég lofaði henni öryggi og "fyrsta-heims" líferni.  Ég átti náttúrulega frekar á dauða mínum von, en þessum uppþotum og ófriði, sem reið yfir landið. 

Aldrei hefði ég trúað að mér þætti ég vera að skríða "heim í öryggið", þegar ég sneri tilbaka til Kinshasa.......

Svo lengi lærir sem lifir, sagði einhver snillingur,- ég sé núna að það var hárrétt!!

Endurkoman var hreint alveg ágæt, góðir vinir biðu á flugvellinum, og hópur vina beið á veitingastað, þar sem við höfum myndað "hefð" um að borða saman á laugardögum.

Svo var írskur "brunch" í gærdag, fleiri vinir að hitta og eftir það vinnufélaga-endurfundir.  Það var mjög tilfinningalegt að finna og heyra hve fólk hafði haft einlægar áhyggjur af mér í Kenya, og var ánægt að fá mig heilu höldnu tilbaka......Sweet  :)

Hvað um það, stærsta frétt dagsins: Tóta systir á ammmæli í dag,- ALLIR að senda henni mail eða sms!!!!

Kær kveðja að sinni, myndir og skýrslur síðar

Steinunn 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Drífa Snæland

Ég er svo fegin að þið hafið komist heim ó-skjóttar!!!

Heyrði í múttý í nótt þegar hún var að skríða heim, rosalega ánægð með ferðina

Guðný Drífa Snæland, 14.1.2008 kl. 12:44

2 identicon

Gott að þið eruð komnar aftur í "öryggið" án meiðsla, og ánægðar með ferðina þrátt fyrir óvænt uppþot í heimamönnum. Kveðja Soffía frænka :)

Soffía Snæland (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 23:21

3 identicon

Já, ég get bara vitnað í Pétur frænda, þegar við töluðum við hann í síma "Ef þið lendið inní átökum, ekki meiða innfædda" hehehehehehehe Ótrúlegur :)

SteinunnHelga Snæland (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 14:26

4 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Ef maður fiktar of lengi með eldspítur, brennir maður sig fyrir rest.

Sumt verður aldrei aftur tekið.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 16.1.2008 kl. 09:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband