Stormskerið á Afrískum þjóðvegi ofl.

Í síðustu viku var ég send “út á land”, enn eina ferðina.  Það ferðalag var allt hið merkilegasta.  Ferðin var sjö klukkustunda akstur hvora leið, en mér til mikillar undrunar allt bundið slitlag!!  Við fórum þrjú á tveimur bifreiðum, klukkan 06:30 á miðvikudagsmorgni, vorum upptekin í sérverkefnum á fimmtudag, of ókum af stað tilbaka klukkan 06:30 á föstudagsmorgun. Ég var ein í “mínum” bil, og fannst ferðin öll hin súrrealískasta,- hversu fyndið er það að aka um Afrískar sveitir, með Sverri Stormsker, Sálina hans Jóns míns, Todmobile og fleiri góða íslenska tónlistarmenn, öskrandi í bílnum??!!  Það er ekki hægt að toppa það!!!! Ég hlustaði aftur og aftur á “Andskotans” Stormskersins,- það á eitthvað svo vel við, og auðvelt að muna textann í Afrískri umferðar-”menningu” Hahahhaahhahahhaahahhaa Á “I-Poddanum” mínum eru líka tvö ættjarðarlög Vestmanneyinga, þ.e. Eyjalög,- og ekki laust við að mér þætti afar vænt um að hlust á þau, þar sem við skriðum upp og niður iðagræna smádali.  Ferðalagið var hið yndislegasta, ef maður einbeitti sér að landslaginu, ég mun hlaða einhverjum myndum inn síðar, eins og gefur að skilja gat ég ekki ekið og tekið myndir, en farþeginn, sem er félagi minn, og sat í hinum bílnum; tók myndir í gríð og erg. Þegar við fórum á miðvikudag, var verkfall vörubílsstjóra, og ég verð að játa það, að ég tek ofan fyrir þessum kollegum okkar.  Þeir höfðu setið í bílunum á þjóðveginum í nokkra daga,- þeir yfirtóku algjörlega aðra akreinina, á rúmlega tveggja kílómetra kafla.  Þar lögðu þeir nef í nef,- afturenda í afturenda,- eftir því á hvaða leið þeir höfðu verið, þegar kollegar þeirra stöðvuðu þá. 

Að sjálfsögðu olli þetta talsverðu öngþveiti, þar eð önnur umferð komst ekki auðveldlega framhjá, á einni akrein,- en þeir voru að gera eitthvað sem sveið,- og skilaði sér raunar á föstudag, þegar þá um morguninn var samið við þá, til aðkoma þeim af veginum!!!  Bílstjórarnir voru ekki með neina stæla við okkur, eða aðra umferð, nema aðra vörubílstjóra, sem ætluðu sér að reyna að smeygja sér framhjá, þeim var kippt útí kant, hið snarasta.

Okkar skelfing var heldur meiri, á föstudagsmorgun- þegar verkfallið hafði verið leyst.... Umferðin, maður minn!!! Algjört helvíti!!!!  Flestir þessara trukka fengju aldrei ferðaleyfi á íslenskum þjóðvegum, þeir eru svo úr sér gengnir.  Maður verður samt að dáðst að Afrískum vörubílstjórum að halda þessum hræjum gangandi.......ja, svona að mestu....

Sko, "þjóðvega-verkstæði" eru alls ekkí óþekkt fyrirbæri.  Trukkurinn stoppar á miðjum vegi, bílstjórinn og vinir hans dreifa trjágreinum á veginn í báðar áttir,- það kemur í stað aðvörunarþríhyrningsins, sem við þekkjum svo vel,- til að aðvara aðra vegfarendur.  Svo kemur maður svífandi að þessu fyrirbæri, þá eru svona tuttugu manns að "gera við",- þ.e. tveir eru að gera við, aðrir eru andlegir ráðgjafar,- allir SNILLINGAR í viðgerðum....Ehe...

Svo ferðin tilbaka var algjör svðilför, vörubílstjórarnir sem voru ekki með bilaða bíla, ELSKA miðjuna á veginum,- og það er ekki útaf veikum köntum,- bara af því að þeir geta það.... Svo eru þeir á einhverju bílhræji síðan fyrir fyrra stríð, ætlað til að flytja 10-15 tonn,- þeir hlaða á það hlassi sem er u.þ.b. 35tonn og svona 30 farþegum,- og svo er ekið...... Þeir eru ekki alveg að meika það upp brekkurnar ag fjöllin,- miklu skárri niður á við.  Þeir eru oft með lasleika í stýrisbúnaði, sem veldur því að þeir reika svolítið oft útaf miðjunni, og nokkuð stefnulaust milli kanta,- það er spennnandi að reyna að reikna út í hvora áttina þeir fari nú,- og skjótast frmúr, meðan maður fer með bænirnar sínar í hljóði og syngur "Andskot-dans" hástöfum Hahahahahahahahahaha........Það held ég nú.

"En allir komu þer aftur og enginn þeirra dó" varð hlutskipti okkar félaganna í þessari ferð, og ég naut hennar bara hreint ágætlega.

Annað er bara við það sama, nóg að gera og mér leiðist hreint ekki.  Farin að hlakka til Höfðaborgar í Maí svona vikutíma, og ástkæra Ísland í mánuð frá og með miðjum Júlí,- búin að bóka miðana JIBBBBÍÍÍÍÍÍÍÍÍ..................!!!!!!!!!!!!!

Ágætt í bili, verð að fara að kíkja á íslenskar fréttir, og vita hvort það er EITTHVAÐ annað að gerast í þessari vitskertu veröld, en hlv....USA forkosningar

Elskurnar, veriði hressust!!!  Bestu kveðjur Steinunn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

skemmtileg saga.. hefur eflaust verið´ævintýri að hossast á þessum tólum þeirra í afríkunni

Óskar Þorkelsson, 5.3.2008 kl. 19:17

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

he he ég las svarið mitt aftur og gat ekki annað en brosað..  umm ég átti auðvitað við bíltrukkana þeirra

Óskar Þorkelsson, 5.3.2008 kl. 21:46

3 Smámynd: Steinunn Helga Snæland

Sæll Óskar,- já þetta var einstaklega skemmtileg ferð,- þó glæfraaksturinn tilbaka héldi adrealíninu gangandi yfir helgina..... Segðu mér, ertu í pílukasti á þessari mynd, sem fylgir? Áhugavert,- eina og skemmtilegasta íþrótt sem ég hef stundað um ævina.....  :)

Steinunn Helga Snæland, 6.3.2008 kl. 14:19

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

já ég er rétt búinn að kasta pílunni þegar myndin var tekin.

Óskar Þorkelsson, 6.3.2008 kl. 19:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband