Sumarfrí í nánd, JIBBÍ.....

Mikið lifandi skelfing hlakka ég til að koma heim í snjókomuna, hálkuna og ófærð,- jibbíjei!!!!  Þetta er nú alveg með ólíkindum, og ég er búin að hljægja mig máttlausa.....Kannski hafði spennufallið með lausn Flugumferðarstjóadeilunnar eitthvað með taugahláturinn að gera...... Ekki neinn smáléttir að Flugumferðarstjórar hafi samið, var farin að óttast að ég myndi lenda í hremmningum á heimleiðinni.....  Besta fréttin, sem kitlaði "veiðitaugarnar" var urriðafréttin, "Minkur í Urriðamaga"...??  Ótrúlegt, spennandi og stórskemmtileg frétt...... Ég vona að ég þurfi ekki að ná í ísborinn minn samt, og veiða í gegnum vök, þegar ég kem heim....  :)  Elskurnar, eigið góða helgi,og AKIÐ EFTIR AÐSTÆÐUM!!!!  Kveðja frá Kongó

Steinunn 


mbl.is Varað við snjókomu og hálku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Guðbjörg Snæland

Sæl frænka. Flott að þú ert að koma til landsins. Ég treysti á þig til að halda upp merki föður þíns og hans "afleggjara" og mæta á ættarmótið á Fossatúni 18. - 20. júlí. Vonast til að sjá þig þar og reyndu nú að plata hana Guðnýju Drífu með þér . Hún var eitthvað löt þegar ég heyrði í henni.... hehe

Kristín Guðbjörg Snæland, 28.6.2008 kl. 10:19

2 Smámynd: Steinunn Helga Snæland

Sæl frænka

Já takk, við ætlum að reyna að vera þar, ég og strákarnir,- ég læt aðra alfarið um að taka sínar ákvarðanir..... :)

Hvernig get ég fengið upplýsingar um stað og stund á ættarmótinu??  Eins hef ég hug á að vita hvort er ekki svefnpokagisting/bændagisting, nærri,- ég sé ekki fyrir mér að vera í tjaldi,- bara hreinlega get það ekki......

Sendu mér endilega línu!!!

Kveðjur

Steinunn 

Steinunn Helga Snæland, 1.7.2008 kl. 06:39

3 identicon

hæhæ skvís

ég get varla beðið  eftir að sjá þig.hvenær kemur til Íslands það er búið að gera ráð fyrir útilegu með okkur  krökkunum bara vita hvenær aðþví að ég er farina að vinna þegar þú kemur.

love you bigg

jóna holm (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband