Ég er sko flutt, núna!!!!

Þetta er nú enn einn sárgrætilegi brandarinn frá Kína,- þótt ég yrði sennilega uppáhaldsþegn hjá þeim, keðjureykinga manneskjan.

En framkoma Kínverskra yfirvalda, í garð þegna sinna, er svona heldur brutal, fyrir minn smekk,- að öðru leiti.

Ég, sem er allra jafna ópólitísk,- gat ekki einu sinni hugsað mér að horfa á eina mínútu af Ólympíuleikunum,- því ég fékk mig fullsadda að lesa um mannréttindabrot og hvernig verkamenn utan af landi voru hlunnfarnir, reknir áfram sme þrælar og misnotaðir,- til að koma allri sviðsetningunni á legg,- og svo sagt að sneypast launalausir heim aftur.

Er þetta ekki alveg makalaust?


mbl.is Skipað að auka reykingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband