Jákvæð frétt, um jákvæða umfjöllun!
Þessi frétt er jafnfrábær og lyktin af fyrsta degi vors, á Íslandi!!
Eftir allan neikvæða fréttaflutninginn, innanlands, sem og utan,- þá vekur þessi frétt með manni vonarneista um að menn sjái enn það sem gerir Ísland svo einstakt, og engu landi við að jafna.
G-strengurinn, lýsir auðvitað bara sérstæðum húmor landsmanna,- en mér finnst að umsagnir um náttúrufegurð landsins, sé það sem skiptir svo miklu máli,- ekki síst þegar þjóðin þarf aukinn ferðamannastraum, og ekki síður jákvæða erlenda umfjöllun, eftir allt skítkastið,- undanfarið hálft ár.
Og ég get bara talað fyrir mig, þótt ég komist ekki á Vestfirðina í sumar, eins og planið var (fresta því um eitt ár), þá vakti lestur fréttarinnar enn meiri tilhlökkun í brjósti mér, að koma til landsins í sumar, í sumarfrí.
Ég þrái hinar löngu, hljóðlátu sumarnætur.....Helst á öðrum endanum á veiðistöng, við fallegt vatn. Að heyra ekki í neinni bifreið, bara einstöku fugli,- lóu, spóa, önd.......Og kannski kind og lamb að jarmast á......
Það er fátt dásamlegra í heimi hér. Það er uppáhaldsstaðurinn minn, og uppáhaldstíminn minn, á árinu!!!
Ég vona sannarlega að þessi umfjöllun nái augum og athygli sem flestra, og verði til þess að enn fleiri ferðamenn hugsi sér til hreyfings til Íslands!!
Góðar stundir
Steinunn
Fyrsti G-strengur heims á Vestfjörðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ó hvað ég er innilega sammála þér Steinunn mín,verst að þú komist ekki vestur,þar er sko mjög fallegt,gleðilegt sumar.
Jóhannes Guðnason, 6.5.2009 kl. 18:04
Ég veit, takk fyrir fallega kveðju, gleðilegt sumar!! Vestfirðirnir VERÐA að ganga upp næsta sumar!! Ég er búin ad lofa drengjunum mínum því, og Snæfellsnesinu lika,- leitt ad það gekk ekki upp í ár.....En eins og Jökuldælingar segja gjarnan "Það koma alltaf nógir dagar"....Hahahaha Þetta gat ég nú lært af þeim... :)
Steinunn Helga Snæland, 6.5.2009 kl. 18:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.